Biskup Íslands auglýsir starf sóknarprests við Breiðafjarðar- og Strandaprestakall
Umsóknarfrestur 15.07.2025
Fullt starf
Biskup Íslands auglýsir starf sóknarprests við Breiðafjarðar- og Strandaprestakall Biskup Íslands óskar eftir sóknarpresti til þjónustu í Breiðafjarðar- og Strandaprestakall, Vestfjarðaprófastsdæmi. Miðað er við að viðkomandi getið hafið störf 1. september nk. Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 17/2021-2022 og starfsreglna um presta nr. 6/2023-2024. Tengla á þessar heimildir er að finna á heimasíðu kirkjunnar https://kirkjan.is/kirkjan/log-reglugerdir-starfsreglur-o.fl/. Með umsókn sinni staðfesta umsækjendur að þeir hafi átt þess kost að kynna sér þessar reglur. Í Breiðafjarðar- og Strandaprestakalli eru 11 sóknir og 16 kirkjur. Sóknirnar eru Árnessókn, Kaldranessókn, Drangnessókn, Hólmavíkursókn, Kollafjarðarnessókn, Óspakseyrarsókn, Melgraseyrarsókn, Nauteyrarsókn, Staðarhólssókn, Garpdalssókn, Gufudals- og Reykhólasókn. Vísað er til þarfagreiningar fyrir prestakallið varðandi frekari upplýsingar um starfið og starfs¬umhverfið. Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna og önnur kirkjuleg stjórnvöld. Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir allar umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8 gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf. Valnefnd skal ná samstöðu um einn umsækjanda en valið skal byggt á fyrirliggjandi þarfagreiningu og rökstutt á grundvelli hennar. Í framhaldinu ræður biskup viðkomandi í starfið, að því gefnu að hann telji niðurstöður valnefndar reistar á lögmætum sjónarmiðum. Valnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 13. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf. Umsækjendur skulu gera skriflega grein fyrir starfsferli og starfsreynslu og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram. Umsókn ber að fylgja staðfest afrit af prófskírteini, svo og upplýsingar um starfsþjálfun eftir því sem við á. Einnig skal fylgja staðfesting á annarri menntun og þjálfun sem nýtist í starfi. Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag.theol/cand.theol prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá Þjóðkirkjunni. Umsækjendum ber að skila greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn sína og væntingar varðandi þjónustuna. Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá viðkomandi, sbr. 4. gr. starfsreglnanna. Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni. Tengil á eyðublaðið er að finna https://kirkjan.is/library/Images/Frettamyndir/Skjol-vegna-fretta/samthykki-fyrir-oflun-upplysinga-ur-sakaskra.pdf Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar. Er einkum vísað til starfsreglna um presta. Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall. Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla, hljóti þær samþykki kirkjuþings. Sr. Magnús Erlingsson, prófastur við ráðningarferli þetta, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins í síma 844-7153 eða á netfangið isafjardarkirkja@simnet.is. Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjóðkirkjunni, s. 528 4000, eða á netfangið ragnhilduras@kirkjan.is eða brynja@kirkjan.is. Umsóknarfrestur er til miðnættis 15. júlí 2025. Sækja ber rafrænt um starfið á hér á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram. Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020. Þjóðkirkjan hvetur öll kyn til að sækja um starfið. Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti. Hér er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar. Verði farið fram á almennar prestskosningar er þó ekki hægt að halda nafnleynd. Þarfagreining fyrir Breiðafjarðar- og Strandaprestakall Breiðafjarðar- og Strandaprestakall er víðfeðmt prestakall í Vestfjarðaprófastsdæmi. Í prestakallinu eru 11 sóknir og 16 kirkjur. Gert er ráð fyrir reglulegu helgihaldi í fimm sóknum en í hinum sóknunum er messað eftir aðstæðum. Grunnskólar eru starfræktir í þremur sóknanna, það er í Drangnessókn, Hólmavíkursókn og Reykhólasókn, og þar þarf að bjóða upp á barnastarf og fermingarfræðslu hluta úr ári eða í lotum. Þá er lítill sveitaskóli á Finnbogastöðum. Á svæðinu eru tvö dvalarheimili fyrir eldri borgara. Hólmavíkursókn er fjölmennasta sóknin og hún er miðsvæðis í prestakallinu. Starfsstöð sóknarprestsins er í Hólmavíkurkirkju. Útfararþjónusta er á Hólmavík og þjónar hún öllu svæðinu. Útfararþjónustan útvegar organista og söngfólk fyrir útfarir og annast undirbúning útfararathafna. Prestakallið leitar eftir dugmiklum sóknarpresti, sem getur leitt helgihald þótt ekki sé alltaf organisti tiltækur. Sóknarpresturinn þarf að vera tilbúinn til að sinna víðfeðmu prestakalli og hafa vilja til að sinna öldruðum og sjúkum, sem og að vera til staðar fyrir fólk í sorg.
Tengiliður
isafjardarkirkja@simnet.is