Biskup Íslands auglýsir starf prests við Bjarnanesprestakall.
Umsóknarfrestur 09.07.2025
Framtíðarstarf
Biskup Íslands auglýsir starf prests við Bjarnanesprestakall. Biskup Íslands óskar eftir presti til þjónustu í Bjarnanesprestakalli. Miðað er við að viðkomandi getið hafið störf 1. september 2025. Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 17/2021-2022 og starfsreglna um presta nr. 6/2023-2024. Tengla á þessar heimildir er að finna á heimasíðu kirkjunnar hér. Með umsókn sinni staðfesta umsækjendur að þeir hafi átt þess kost að kynna sér þessar reglur. Í Bjarnanesprestakalli, Suðurprófastsdæmi eru fimm sóknir. Hafnarsókn er með langflesta íbúa eða rúmlega 1.900, Bjarnanessókn 270, Brunnhólssókn um 80, Hofssókn um 280 og Kálfafellsstaðarsókn með um 220. Samtals eru í prestakallinu tæplega 2.800 íbúar. Vísað er til þarfagreiningar fyrir prestakallið varðandi frekari upplýsingar um starfið og starfsumhverfið. Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna og önnur kirkjuleg stjórnvöld. Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8. gr. Framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf. Valnefnd skal ná samstöðu um einn umsækjenda en valið skal byggt á fyrirliggjandi þarfagreiningu og rökstutt á grundvelli hennar. Í framhaldinu ræður biskup viðkomandi í starfið, að því gefnu að hann telji niðurstöður valnefndar reistar á lögmætum sjónarmiðum. Valnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 13. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf. Umsækjendur skulu gera skriflega grein fyrir starfsferli og starfsreynslu og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram. Umsókn ber að fylgja staðfest afrit af prófskírteini ásamt einkunum, svo og upplýsingar um starfsþjálfun eftir því sem við á. Einnig skal fylgja staðfesting á annarri menntun og þjálfun sem nýtist í starfi. Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag.theol/cand.theol prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá Þjóðkirkjunni. Umsækjendum ber að skila greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn sína og væntingar varðandi þjónustuna. Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda, sbr. 4. gr. starfsreglnanna. Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni. Tengil á eyðublaðið er að finna hér. Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar. Er einkum vísað til starfsreglna um presta. Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall. Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla, hljóti þær samþykki kirkjuþings. Óskar Hafsteinn Óskarsson, prófastur við ráðningarferli þetta, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins í síma 856 1572 eða á netfangið oskar.hafsteinn.oskarsson@kirkjan.is Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjóðkirkjunni, s. 528 4000, eða á netfangið jona@kirkjan.is eða ragnhilduras@kirkjan.is. Umsóknarfrestur er til miðnættis 9. Júlí 2025 Sækja ber rafrænt um starfið á hér á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram. Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020. Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti. Hér er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar. Verði farið fram á almennar prestskosningar er þó ekki hægt að halda nafnleynd. Þarfagreining 1. Lýsing á prestakallinu Í Bjarnanesprestakalli, Suðurprófastsdæmi eru fimm sóknir. Hafnarsókn er með langflesta íbúa eða rúmlega 1.900, Bjarnanessókn 270, Brunnhólssókn um 80, Hofssókn um 280 og Kálfafellsstaðarsókn með um 220. Samtals eru í prestakallinu tæplega 2.800 íbúar. Sjö kirkjur eru í prestakallinu þar af fimm sóknarkirkjur. Á Höfn í Hornafirði er sjávarútvegur og ferðaþjónusta undirstaða samfélagsins. Í hinum sóknunum er landbúnaðarsamfélag með sífellt aukinni ferðaþjónustu í öllu héraðinu þ.m.t. á Höfn. Á Höfn er leikskóli, grunnskóli, fjölbrautarskóli og tónlistarskóli. Einnig er þar heilsugæsla og dvalar- og hjúkrunarheimili aldraðra. Í Öræfum er einnig að finna leik- og grunnskóla. Kirkjukórar eru starfandi í prestakallinu. Vegalengdir í prestakallinu eru miklar og síaukin umferð ferðamanna, ekki síst á vegakerfinu og vinsælum ferðamannastöðum. Aðal starfsvettvangur prestanna er í Hafnarkirkju. Þar er safnaðarheimili og móttökueldhús. Líkhús er í kjallara kirkjunnar. Við Hafnarkirkju er starfandi organisti í hlutastarfi. Sóknarnefndarfólk og sjálfboðaliðar sinna öðrum almennum störfum varðandi kirkjustarfið í kirkjum prestakallsins. 2. Umfang prestsþjónustunnar, starfsaðstaða o.fl. Báðir prestar prestakallsins þjóna prestakallinu í heild sinni og sinna öllum almennum prestsverkum og skipta verkefnum á milli sín eftir nánara skipulagi. Tvær guðsþjónustur eru að jafnaði í mánuði í Hafnarkirkju og eftir hefðum og samkomulagi við sóknarnefndarnefndir hinna kirknanna. Barna- og æskulýðsstarf er yfir vetrartímann í Hafnarkirkju og hefur það vaxið undanfarin ár. Vegalengdir eru miklar og því þurfa prestar að vera meðvitaðir um að sálgæsla gæti tekið lengri tíma vegna fjarlægðar frá dvalarstað presta. Annað kirkjulegt starf sem haldið er uppi er fermingarbarnastarf, kórastarf, foreldramorgnar, 12 spora fundir (Vinir í bata), AA fundir. Prestarnir sinna helgihaldi og sálgæslu á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Skjólgarði og dagþjónustu fatlaðra. Prestarnir vinna í áfallateymi með lögreglu, heilbrigðisstarfsfólki, félagsþjónustu og Rauða krossinum. 3. Áherslur í starfi Mikilvægt er að prestur búi yfir góðri samskiptahæfni og samstarfsvilja við sóknarbörn og sóknarnefndir. Megináhersla er á að viðkomandi geti sinnt fjölbreyttu safnaðarstarfi; helgihaldi í öllum kirkjum prestakallsins, þjónustu við fatlaða og aldraða, og leggi sérstaka áherslu og barna- og æskulýðsstarf. Gera má ráð fyrir einhverju barnastarfi í dreifbýli prestakallsins. Sýni frumkvæði í starfi. Viðkomandi hafi þekkingu af sálgæslu. Hafi kunnáttu í tölvumálum og þekkingu á samfélagsmiðlum til notkunar í safnaðarstarfi. Tilbúinn til að standa vörð um og efla enn frekar það starf sem fyrir er í söfn
Tengiliður
oskar.hafsteinn.oskarsson@kirkjan.is