Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar starf prests í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi með sérstakar skyldur við Skagaströnd
Umsóknarfrestur 27.06.2025
Fullt starf
Biskup Íslands óskar eftir presti til þjónustu í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að niðurstaða um ráðningu liggur fyrir.
Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 17/2021-2022 og starfsreglna um presta nr. 6/2023-2024. Tengla á þessar heimildir er að finna á heimasíðu kirkjunnar https://kirkjan.is/kirkjan/log-reglugerdir-starfsreglur-o.fl/. Með umsókn sinni staðfesta umsækjendur að þeir hafi átt þess kost að kynna sér þessar reglur. Vísað er til meðfylgjandi þarfagreiningar varðandi frekari upplýsingar um starfið og starfsumhverfið. Þarfagreining fyrir starfið er birt hér að neðan í framhaldi af auglýsingunni. Allar gildar umsóknir fara til Valnefndar sem fer yfir umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf. Valnefnd skal ná samstöðu um einn umsækjenda en valið skal byggt á fyrirliggjandi þarfagreiningu og rökstutt á grundvelli hennar. Í framhaldinu ræður biskup viðkomandi í starfið, að því gefnu að hann telji niðurstöður valnefndar reistar á lögmætum sjónarmiðum. Valnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Umsækjendur skulu gera skriflega grein fyrir starfsferli og starfsreynslu og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram. Umsókn ber að fylgja staðfest afrit af prófskírteini, svo og upplýsingar um starfsþjálfun eftir því sem við á. Einnig skal fylgja staðfesting á annarri menntun og/eða þjálfun sem nýtist í starfi. Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag.theol/cand.theol prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá Þjóðkirkjunni. Umsækjendum ber að skila greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn sína og væntingar varðandi þjónustuna. Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda, sbr. 4. gr. starfsreglnanna. Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni. Tengil á eyðublaðið er að finna áhttps://kirkjan.is/library/Images/Frettamyndir/Skjol-vegna-fretta/samthykki-fyrir-oflun-upplysinga-ur-sakaskra.pdf. Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar. Er einkum vísað til starfsreglna um presta. Presturinn hefur sérstakar skyldur við Skagaströnd. Jafnframt fylgja starfinu viðbótaskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna og önnur kirkjuleg stjórnvöld. Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að gerðar verði skipulagsbreytingar eins og biskupafundur hefur unnið að, t.d. með sameiningum en jafnframt er unnið að heildarendurskoðun á þjónustu Þjóðkirkjunnar. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir, prófastur Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmis, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins í síma 453-5930 eða á netfangið sigridur.gunnarsdottir@kirkjan.is. Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjóðkirkjunni, s. 528 4000, eða á netfangið ragnhilduras@kirkjan.is eða jona@kirkjan.is. Umsóknarfrestur er til miðnættis 27. júní 2025. Sækja ber rafrænt um starfið á hér á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram. Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020. Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti. Hér er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar.
Þarfagreining
Húnavatnsprestakall er í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmi. Það samanstendur af fjórum eldri prestaköllum er sameinuð voru árið 2022, Melstaðar-, Breiðabólstaðar-, Þingeyraklausturs-, og Skagastrandarprestakalli. Í prestakallinu búa rúmlega 3000 manns (3.106), hlutfall íbúa í þjóðkirkju er um 75%. Í prestakallinu eru 18 sóknir: Hvammstangasókn (729), Tjarnarsókn (35), Melstaðarsókn (157), Prestbakkasókn í Hrútafirði (94), Staðarbakkasókn (61), Staðarsókn í Hrútafirði (69), Víðidalstungusókn (122), Bergstaðasókn (32), Bólstaðarhlíðarsókn (37), Hofssókn við Skagaströnd (43), Holtastaðasókn (38), Höfðasókn á Skagaströnd (478), Höskuldsstaðasókn (70), Auðkúlusókn (33), Blönduóssókn (929), Svínavatnssókn (47), Undirfellssókn (48) og Þingeyrasókn (97). Yfir veturinn er messað með reglubundnum hætti á Hvammstanga, Blönduósi og Skagaströnd. Í fámennari sóknum er helgihald á hátíðum og eftir atvikum. Þá er reglulegt helgihald á dvalar- og hjúkrunardeild HVE á Hvammstanga, á dvalar- og hjúkrunardeild HSN á Blönduósi og dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg á Skagaströnd. Barna- og æskulýðsstarf hefur verið öflugt í prestakallinu um langa hríð með foreldramorgnum, kirkjuskóla, 6-9 ára starfi, TTT-starfi og æskulýðsfélagi. Starfi því sem hér er auglýst getur fylgt prestsbústaður á Skagaströnd en gert er ráð fyrir sérstökum skyldum við sóknirnar í gamla Skagastrandarprestakalli, auk þess sem presturinn sinnir þjónustu í öllu prestakallinu. Þá fylgja starfinu sérstakar héraðsprestskyldur í samráði við prófast. Í prestakallinu starfa 3 prestar sama í teymi, sóknarprestur og tveir prestar. Prestarnir vinna eftir ákveðnu vaktakerfi sem miðar að því að jafna þjónustubyrði þeirra og gera gleggri skil milli vinnu og frítíma. Prestarnir hafa starfsstöðvar í kirkjunum á Hvammstanga, Blönduósi og Skagaströnd. Organisti er búsettur á Skagastönd og starfar að auki við fleiri sóknir, organistar eru einnig á Blönduósi og Hvammstanga. Kórastarf er öflugt í prestakallinu öllu. Í prestakallinu eru þrír þéttbýliskjarnar: Blönduós, Hvammstangi og Skagaströnd. Á þeim stöðum eru leik- og grunnskólar, heilsugæsla, dvalarheimili aldraðra og ýmis þjónusta. Sjúkrahús er á Blönduósi og Hvammstanga. Til sveita er stundaður landbúnaður og ýmiskonar ferðaþjónusta. Helstu hæfnisóskir eru að umsækjendur búi yfir samskiptahæfni og samstarfsvilja. Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af barna- og æskulýðsstarfi og hafi einnig áhuga til að starfa með öldruðu fólki. Einnig er mikilvægt að prestur sé reiðubúinn að starfa í fjölmenningarlegu umhverfi. Þá er mikilvægt að prestur búi í prestakallinu þó það sé ekki skylda, sé hluti af samfélaginu og taki virkan þátt í því.
Tengiliður
sigridur.gunnarsdottir@kirkjan.is.